21.9.2009 | 12:39
Jahérna hér
Ætlaði að vera svo dugleg þá vikuna 7.-12. ágúst og byrjaði alveg vel en náði svo að veikjast. Hef sjaldan verið eins fúl eins og þá vikuna. Þar af leiðandi lagðist ég að sjálfsögðu í sukkið líka þá. Mér finnst eins og ég þurfi annaðhvort að taka þetta af trukki eða bara alls ekkert. Fór síðan í sumarbústaðarferð þá um helgina og skemmti mér alveg rosalega vel og borðaði vel. Eftir þá helgi steig ég mjög kvíðin á vigtina sem sagði 86,1 kg. Margir mánuðir síðan ég var í þeirri þyngd síðast.
En ég lét þetta ekkert draga mig niður, ég ætla að komast í form og ekkert meira með það. Tók svo mjög vel á því núna í síðustu viku. Ekkert nammi og æfði á hverjum einasta degi og svitnaði eins og svín. Þetta gekk líka vel hjá mér, missti 2,2 kg og er því komin niður í 83,9 kg. Var bara mjög ánægð með það, meira en ég átti von á.
Var að æfa í gær eins og harðsperrurnar mínar minna mig ágætlega á í dag. Ætla svo að svitna aðeins meira í kvöld, hlakka til
Um bloggið
Dóra í átaki
Tenglar
Átak
Uppskriftir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.