Eurovision spenningur

Er orðin frekar spennt fyrir Eurovision á morgun.  Er svo mikill Eurovision lúði líka.  Eiginmaðurinn verður á leiðinni heim frá útlöndum þegar keppnin verður í gangi, þvílíkt leiðinlegt fyrir hann að missa af þessu.  Ég er búin að æsa börnin upp með mér þannig að þau fá að vaka frameftir og við horfum á þetta saman.

Vikan er búin að vera mjög góð æfingalega séð.  Er búin að æfa alla daga frá mánudeginum og ætla svo að taka eina góða æfingu í kvöld yfir Idolinu.  Mataræðið er búið að vera gott síðari part vikunnar, fyrri partinn var mataræðið algjör skelfing.  Ég held líka að ég eigi alveg eftir að finna fyrir því í vigtuninni á morgun, er frekar hrædd um það.  En það er líka alveg við því að búast að ég fari nú að léttast aðeins hægar núna, er búin að vera að missa frekar hratt.

Ætla samt eins og áður að vera ekkert að svekkja mig á þessu.  Ef ég þyngist þá er það engum að kenna nema sjálfi mér og það er engin nema ég sem get gert eitthvað í því og það skal ég gera!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Dóra í átaki

Höfundur

Dóra
Dóra

Rúmlega þrítug tveggja barna móðir sem er komin með nóg af sjálfri sér. Ætla því að reyna að minnka aðeins.

Vigtunartölur
(smella á myndina)

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband